Við minnum á bjórkvöld SVEF á miðvikudagskvöldið, 25. mars þar sem við ætlum að ræða um Open Source CMS kerfi (vefumsjónarkerfi). Á dagskrá verða stuttar kynningar á sex kerfum frá reynslumiklu fólki sem mun fjalla um notkun kerfanna og kosti þeirra og galla. Við ætlum að hittast á veitingastaðnum Balthazar í Hafnarstrætinu, efri hæð kl. 20:30. Vekjum athygli á að SVEF félögum býðst sérstakt tilboð á drykkjum.
Dagskrá:
- Andri Sigurðsson, frá Vefstofunni - segir okkur frá Wordpress
- Gunnar Grímsson, viðmótshönnuður og verkefnastjóri vefmála hjá HÍ - fjallar um Drupal og reynslu HÍ
- Sigurður Fjalar Jónsson, ritstjóri og vefhönnuður hjá HugiAx - segir okkur frá Joomla
- Brian Suda, hugbúnaðarsérfræðingur, TM Software - fjallar um Liferay
- Soffía Kristín Þórðardóttir, verkefnastjóri TM Software - fjallar um Nucleus
- Einar Gústafsson, vefstjóri Íslandsbanka - ætlar að segja frá tólinu Cushy CMS
Nú svo vonumst við eftir fjörugum umræðum um ykkar reynslu af þessum tólum eða öðrum.
Sjáumst á Balthazar á í kvöld kl. 20:30.








