Takið frá fimmtudagskvöldið 30. apríl fyrir Sharepoint: Hot or NOT? Bjórkvöldið verður haldið á efri hæðinni á Balthazar og hefst kl. 20:30. Fyrirlesarar eru hoknir af reynslu úr samvinnu með Sharepoint, en stíga nú í fyrsta sinn á stokk á bjórkvöldi SVEF.
Takið frá fimmtudagskvöldið 30. apríl fyrir Sharepoint: Hot or NOT?
Bjórkvöldið verður haldið á efri hæðinni á Balthazar og hefst kl. 20:30.
Fyrirlesarar eru hoknir af reynslu úr samvinnu með Sharepoint, en stíga nú í fyrsta sinn á stokk á bjórkvöldi SVEF.
- Óli Ívarsson hjá Össur segir okkur frá því hvernig er að reka Sharepoint í fjölþjóðlegu umhverfi.
- Sirrý Sigurðardóttir hefur komið að uppsetningu Sharepoint hjá tveimur fyrirtækjum og ætlar að fjalla um sína reynslu af því.
- Anna Helgadóttir er vefstjóri Marel og ætlar að leiða okkur í sannleikann um það hvers vegna Marel kaus að nota ekki Sharepoint fyrir ytri vefinn sinn.
- Sigurður Unnar Einvarðsson frá TM Software kynnir innranet og vinnusvæði starfsmanna Landsbjargar.
Eins langar okkur að heyra frá fleirum sem hafa reynslu af Sharepoint. Endilega mætið á fimmtudagskvöldið og segið frá ykkar reynslu eða hafið samband við okkur í netfangið svef@svef.is.








