Í kvöld fimmtudagskvöld kl. 20.30 er bjórkvöld hjá SVEF. Að þessu sinni er umræðuefnið ferðabransinn og markaðssókn í ferðamenn.
Í kvöld fimmtudagskvöld kl. 20.30 er bjórkvöld hjá SVEF. Að þessu sinni er umræðuefnið ferðabransinn og markaðssókn í ferðamenn.
Staðurinn er veitingastaðurinn Balthazar í Hafnarstrætinu, efri hæð. Vekjum athygli á að SVEF félögum býðst sérstakt tilboð á drykkjum.
Dagskrá:
Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði, (Master í Nation-Branding) fjallar um niðurstöður ímyndarkönnunar, fyrirhugað Íslandsportal og möguleika Íslands á netinu.
Ernir Erlingsson framkvæmdastjóri Ýmir Mobile fjallar um og sýnir Mobileguide.
Sævar Örn Sævarsson frá IGM fjallar um Landshlutavefina í ferðaþjónustu.
Eins og alltaf langar okkur að heyra frá fleirum. Endilega mætið á fimmtudagskvöldið og segið frá ykkar reynslu eða hafið samband við okkur í netfangið svef@svef.is.
Sjáumst á Balthazar í kvöld kl. 20:30.








