Yfir helmingur þjóðarinnar er kominn á Facebook og allir fylgjast með öllum. Fólk missir vinnuna vegna bloggskrifa. Fréttir berast í gegnum twitter áður en þær birtast í fjölmiðlum. Er komið árið 1984? Er stóri bróðir að fylgjast með okkur (og hver er þá stóri bróðir?)
Ráðstefnan er heill dagur, frá 9-16 og kostar miðinn 29.900. Mig langar til að bjóða félögum SVEF 10.000 kr afslátt. Meðfylgjandi eru upplýsingar um ráðstefnuna og afsláttarkóði fyrir SVEF:
Yfir helmingur þjóðarinnar er kominn á Facebook og allir fylgjast með öllum. Fólk missir vinnuna vegna bloggskrifa. Fréttir berast í gegnum twitter áður en þær birtast í fjölmiðlum. Er komið árið 1984? Er stóri bróðir að fylgjast með okkur (og hver er þá stóri bróðir?)
Samfélagið er að taka miklum breytingum með þessum "nýju samfélögum". Hvað veldur? Hverjar eru hætturnar sem við stöndum frammi fyrir og hver eru tækifærin? Riða undirstöður samfélagsins undan þessum nýju fyrirbærum eða eru þarna tækifærin til þess að ná undraverðum árangri í markaðssetningu fyrir lítinn sem engan pening?
Þessar spurningar og margar fleiri eru viðfangsefni 9.9.9 ráðstefnunnar, fyrstu ráðstefnunnar á Íslandi um netsamfélögin og áhrif þeirra á hin ýmsu svið samfélagsins. Meðal fyrirlesara verður fólk úr viðskiptalífinu, fjölmiðlum og stjórnmálum - og líka bara "venjulegt fólk", sem mun segja okkur frá því hvaða áhrif netsamfélögin eru að hafa, hvað beri að varast og hver tækifærin eru sem bíða eftir því að við grípum þau. Við munum fá að sjá raunveruleg íslensk dæmi um árangur með íslenskum tölum - og hvernig fólk fór að.
Fjöldi áhugaverðra fyrirlesara verða á ráðstefnunni og pallborðsumræðum um áhrif netsamfélaga á:
- tónlistariðnaðinn
- stjórnmálin
- fréttir
- ferðaiðnaðinn
- viðskiptalífið
Meðal fyrirlesara eru:
- Andrés Jónsson almannatengill
- Alda bloggari á Iceland Weather Report
- Bárður Örn Gunnarsson hjá Ratsjá
- Bergljót Baldurs frá ruv.is
- Brian Suda hjá Clara
- Dagur B. Eggertsson stjórnmálamaður
- Egill Harðar hjá Gogoyoko
- Finnur Magnússon aka gommit
- Gísli Freyr hjá vb.is
- Gunnar Hólmsteinn hjá Clara
- Helgi Hrafn hjá Helginn.net
- Hjördís Árnadóttir hjá Actavis
- Hjörtur Smárason hjá Scope
- Jónas Guðmundsson hjá Markaðsstofu Vesturlands
- Maríanna Friðjónsdóttir fjölmiðlagúrú
- Ólafur Arnalds tónlistarmaður
- Sigurður Valur, markaðsstjóri Iceland Express
Ráðstefnan verður haldin í Salnum í Kópavogi miðvikudaginn 9.9.'9 og hefst kl. 09:09:09 og lýkur kl. 16.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, fyrirlesarana og dagskránna er að finna á http://www.vefjakrot.is/999
Verð á ráðstefnuna er 29.900 en félagar í SVEF fá 10.000 kr. afslátt! Þegar þið bókið miðann á midi.is notið þá kóðann svef999. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningunum til þess að fá afsláttinn:
Hvernig nota ég afsláttinn ?
Farðu á midi.is, veldu miða til kaups og í auða reitinn í skrefi #3 sláðu þá inn eftirfarandi: svef999
Smelltu á "Senda" og þá sérðu að afslátturinn kemur inn um leið.
ATH: Staðfestið EKKI greiðslu fyrr en afsláttur er sýnilega orðinn virkur!
Núna eru tækifærin. Þessi ráðstefna sýnir þér hvernig á að nýta þau.
Sjáumst miðvikudaginn 9.9.'9!







