Hugmyndaráðuneytið og ArticStartup standa fyrir áhugaverðu kvöldi þann 13. október næstkomandi. Kvöldið hefst á stuttum inngangi og svo fer fram stefnumót frumkvöðla kl 20:15.Hver og einn ætti að fá tækifæri til þess að kynnast 13-15 áhugaverðum einstaklingum á um 45 mín. Nánar þegar að þessu kemur.
Eftir stefnumótin verða panelumræður þar sem ArcticStartup taka fyrir mjög áhugaverðum fyrirtæki; Meniga og Primula. Frá Meniga koma Viggó Ásgeirsson og Ásgeir Örn Ásgeirsson og frá Primula kemur Ragnheiður Magnúsdóttir. Spjallið verður í um 30-40 mín en þar á eftir verða spurningar og umræða.
Að þessu loknu hvetjum við fólk til þess að taka þátt í enn meira spjalli og networki.
Nánari upplýsingar:
http://www.arcticstartup.com/arcticevening-13th-of-october-reykjavik-iceland/
http://www.facebook.com/event.php?eid=136436879439








