Þrautreynd aðferð til að greina þarfir og lykilaðgerðir viðskiptavina
Samtök vefiðnaðarins, SVEF, bjóða vefstjórum, markaðsstjórum, vörustjórum og öðrum ábyrgðarmönnum vefsvæða á Íslandi upp á masterclass í notendamiðaðri vefstjórnun (e. Top-Task management) fyrir vefi frá einum færasta sérfræðingi heims á þessu sviði, Gerry McGovern. Námskeið Gerry McGovern eru löngu orðin víðfræg um heim allan og hentar sérstaklega vel þeim sem bera ábyrgð á innri-, þjónustu-, sölu- og markaðssvefjum.
Gerry McGovern er meðal eftirsóttustu fyrirlesara og sérfræðinga á heimsvísu, í stjórnun og framsetningu upplýsinga á vef (e. content management). Gerrry hefur skrifað fjórar bækur um þessi mál m.a. metsölubækurnar Content Critical og Killer Web Content.
Áhugavert viðtal við Gerry á uie.com um Task Management
Frá árinu 1996 hefur Gerry skrifað vikulegan pistil sem ber heiti „New Thinking" þar sem hann fjallar um bestu aðferðir í stjórnun á „notenda-miðuðum" og „þarfa-miðuðum" vefjum.
Bev Godwin, Director, FirstGov.gov: The U.S. Government's Official Web Portal, said about Killer Web Content: "Genius! Gerry McGovern gets it! If you read ONE book on managing a Web site, this is it."
Meðal viðskiptavina Gerry eru:Cisco, Microsoft, BBC, Wells Fargo, Tetra Pak, IKEA and the OECD.
Gerry hefur einnig komið fram í sjónvarpsmiðlum á borð við BBC, CNN, CNBC. Gerry hefur margoft verið útnefndur besti fyrirlesarinn (e. best overall speaker) á fjölmörgum ráðstefnum. Hann hefur haldið fyrirlestra á hundruðum ráðstefna hundrað ráðstefna og haldið námskeiðum í yfir 35 löndum.
Nánari upplýsingar um Gerry McGovern og Top Task Management
Upplýsingar um viðburðinn:
Um er að ræða heilsdags námskeið sem fram mun fara á Hótel Loftleiðum föstudaginn 6. nóvember, kl. 8:45-17:00. Verðinu á ráðstefnuna hefur verið stillt í hóf og fá félagsmenn í SVEF helmings afslátt af miðaverði.
Skráning og miðasala opnar á næstu dögum og mun fara fram á Midi.is.
Verð:
- 6.000 - Félagsmenn í SVEF
- 9.000 - Félagsmenn í IMARK
- 12.000 - Aðrir
Innifalið í miðaverði er miði á ráðstefnu og veitingar í kaffihléum fyrir og eftir hádegi.
Vakin er athygli á því að sum verkalýsfélög styrkja sína meðlimi til þátttöku í námskeiðum sem þessum.
Hér er um einstakan viðburð að ræða í íslensku vefsamfélagi og stjórn SVEF vonast til að sjá sem flesta.
SVEF þakkar styrktaraðilum sérstaklega vel fyrir stuðninginn
![]()



![]()









