Aðalfundur Samtaka Vefiðnaðarins, SVEF, var haldinn fyrr í kvöld á veitingastaðnum Sólon í Baknastræti. Á fundinum var farið yfir starfsemi og reikninga félagsins starfsárið 2008-2009 og ný stjórn kjörin fyrir næsta starfsár.
Einar Þór Gústafsson var kjörinn formaður félagsins. Soffía Kristín Þórðardóttir Jóhanna Símonardóttir og Fjóla Jónsdóttir, Hjalti Egilsson og Sigmundur Halldórsson voru kjörin meðstjórnendur.
Þá voru einnig samþykkt ein lagabreytingartillaga sem lagð var fram af fráfarandi stjórn og viðstöddum félagsmönnum. Ákveðið var að félagsgjöld fyrir komandi starfsár yrðu 2000 krónur.
Mjög gagnlegar umræður áttu sér svo stað að lokinni hefðbundinni dagskrá um vefverðlaunin sem haldin verða í lok Janúar.
Fundargerð aðalfundarins:
- Fundurinn settur. Einar Þór Gústafsson tók að sér fundarstjórn
- Skýrsla stjórnar. Einar Þór Gústafsson flutti annál SVEF fyrir starfsárið 2008-2009, fyrir hönd fráfarandi formanns, og fór yfir starf samtakanna og fráfarandi stjórnar.
- Reikningar félagsins kynntir og lagðir til samþykktar. Jóhanna Símonardóttir, gjaldkeri SVEF, kynnti ársuppgjör SVEF fyrir liðið starfsár og lagði til samþykktar.
Ársreikningar félagsins samþykktur einróma án athugasemda. - Birt var kveðja frá fráfarandi formanni sem þakkaði fyrir skemmtilegt og gefandi starf.
- Lagabreytingartillögur. Jóhanna Símonardóttir kynnti lagabreytingartillögu fráfarandi stjórnar og lagði til samþykktar. Eftir umræður og tillögur frá félagsmönnum voru eftirfarandi lagabreyting samþykkt: 7. gr Út var fellt "Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum þ.e. formanni og 4 meðstjórnendum." og í staðinn samþykkt einróma:"Stjórn félagsins skal skipuð félagsmönnum þ.e. formanni og meðstjórnendum.".
- Kjör formanns og stjórnar. Auglýst eftir framboðum til setu í stjórn SVEF starfsárið 2009-2010.
Til setu í stjórn SVEF bárust eftirfarandi framboð:
Einar Þór Gústafsson sem jafnframt gaf kost á sér til formanns
Fjóla Jónsdóttir
Jóhanna Símonardóttir
Soffía Þórðardóttir
Hjalti Egilsson
Sigmundur Halldórsson
Nýja stjórn SVEF skipa
Einar Þór Gústafsson, formaður
Fjóla Jónsdóttir
Jóhanna Símonardóttir
Soffía Þórðardóttir
Hjalti Egilsson
Sigmundur Halldórsson - Félagsgjöld. Samþykkt var einróma og athugasemdalaust að árgjald næsta starfsárs yrði lækkað úr 4.500kr í 2.000kr.
- Almennar umræður. Rætt var um Íslensku Vefverðlaunin sem verða halda í lok janúar og framkvæmd þeirra. Skipað var í sérstaka nefnd sem mun koma til með að móta skipulag vefverðlaunanna.







