Ráðstefnan er haldin af SVEF, Samtökum Vefiðnaðarsins, í tengslum við Íslensku Vefverðlaunin sem fara fram í kjölfar ráðstefnunnar. Ráðstefnan fer fram 12.febrúar í Hugmyndahúsi Háskólana að Grandagarði og hefst kl 13.00.
Gríðarleg tækifæri felast í markaðssókn á Netinu sem mörg íslensk fyrirtæki nýta sér nú með góðum árangri. Að mörgu er að huga til að fjárfestingin nýtist sem best og munu nokkrir nokkrir af helstu sérfræðingum landsins fara yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga og þau tækifæri sem í boði eru.
Ókeypis aðgangur
Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn SVEF, Það er einfalt og ódýrt að gerast félagi. Árgjald er 2000 kr sem veitir afslátt af öllum atburðum SVEF, auk margvíslegra fríðinda og afslátt af atburðum á vegum tengdra aðila.
Dagskrá:
- 13.00 : Formaður SVEF opnar
- 13.10 : Keynote: Staðan í netmarkaðssetningu á Íslandi í dag
Kristján Már Hauksson, Nordic eMarketing - 13.40 : Undirbúningur, Markmiðasetning og val á miðlum
Bárður Örn Gunnarsson, Ratsjá - 14.10 : Auglýsingarborðar sem vekja eftirtekt og virka
Lee Roy Tipton, Hvíta húsið - 14.40 : Hlé
- 15.00 : Samfélagsmiðlar sem markaðstæki
Finnur Pálmi Magnússon, Sauma - 15.30 : Google Adwords á Íslandi, óplægður akur?
Kjartan Sverrisson, Icelandair - 16.00 : Er bannerinn að borga sig? Hvernig mæla á árangur auglýsinga á netinu
Soffía Kristín Þórðardóttir, TM Software - 16.30 : Dagskrá lýkur







