Vefir í úrslitum til Íslensku Vefverðlaunanna 2009

05.02.2010 23:48

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá vefi sem komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna.

Eftirfarandi vefir eru í úrslitum til Íslensku Vefverðlaunanna 2009:

Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn

Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn.

Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn

Besti afþreyingar- og fréttavefurinn

Besta blog/efnistök/myndefni

Besti hand-smátækja vefurinn

Besta markaðsherferðin

  • Icelandair: Hvers vegna velur þú Icelandair
  • Icelandair: Haustleikur
  • Landsbankinn: Náman
  • Keflavíkur flugvöllur: Paraleikur
  • Flugfélag Íslands: Skemmtum okkur innanlands

Íslensku Vefverðlaunin verða afhent í níunda skipti þann 12. febrúar næstkomandi í Hugmyndahúsinu, Grandagarði 2, af Iðnaðarráðherra, Katrínu Júlíusdóttir.

Fyrr um daginn mun SVEF standa fyrir glæsilegri ráðstefnu um markaðsmál á Netinu frá A til Ö. Ráðstefnan fer fram á sama stað og hefst kl 13.00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsfólk í SVEF, en 2000 krónur fyrir þá sem ekki eru í SVEF.