Evrópusamkeppni um besta barnaefnið á netinu

Evrópusamkeppni um besta barnaefnið á netinu

18.11.2010 12:43

Nú er í fyrsta sinn efnt til Evrópusamkeppni um besta barnaefnið á netinu. Um er að ræða sameiginlegt átak fjórtán netöryggismiðstöðva í Evrópu og þeirra þjóða er starfa samkvæmt netöryggisáætlun Evrópusambandsins.

Keppnin fer fram í tvennu lagi. Fyrst verður samkeppni á landsvísu í fjórtán löndum og síðar fer fram Evrópusamkeppni í júní 2011 þar sem sigurvegarar úr landskeppnum keppan sín á milli.

SAFT – Netöryggismiðstöð Íslands hefur umsjón með keppninni hérlendis og aðrir bakhjarlar eru: Nýherji, Microsoft á Íslandi, Icelandic Gaming Industry og Samtök vefiðnaðarins.

Tilgangur samkeppninnar er að vekja athygli á gæðaefni fyrir 6 til 12 ára börn sem er nú þegar til staðar á netinu. Einnig er ætlunin að hvetja til framleiðslu á þess háttar efni. Markmiðið er að netefnið gagnist börnum á einn eða annan hátt svo sem við fræðslu og sköpun.

Samkeppnin er opin fullorðnum og ungu fólki á aldrinum 12 til 17 ára. Ýmiss konar samtök og fyrirtæki geta tekið þátt sem og einstaklingar og hópar.

Reglur um þátttöku og val verðlaunaverkefnis á landsvísu eru í höndum þarlendra umsjónarmanna. Evrópusamkeppnin er einungis opin fyrir vinningshafa frá hverju landi fyrir sig. Þar verða tvenns konar verðlaun veitt. Annars vegar er um að ræða verðlaun fyrir efni frá fullorðnum og hins vegar verðlaun fyrir efni útbúið af unglingum. 

Helstu viðmið við val á verkefnum eru:

  • Ávinningur fyrir viðmiðunarhóp
  • Hversu aðlaðandi verkefnið er
  • Áreiðanleiki
  • Notkunarmöguleikar
  • Markaðssetning


Tillögur sendist á netfangið: saft@saft.is en nánari upplýsingar er að finna á http://www.saft.is/samkeppni og er skilafrestur verkefna renndur út föstudaginn 14. janúar 2011.

SVEF á FacebookÁhugaverð umræða í Facebook hópnum


SVEF á Twitter Greinar og annað góðgæti á Twitter


SVEF á Vimeo Upptökur frá bjórkvöldum og Iceweb