Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2010.
Opið verður fyrir tilnefningar til 25. Janúar. Verðlaunin verða svo afhend við hátíðlega athöfn kl 18.00 í Tjarnarbíói 4. febrúar
- Besti sölu- og kynningarvefurinn (yfir 50 starfsmenn)
- Besti sölu- og kynningarsvefurinn (undir 50 starfsmenn)
- Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
- Besta markaðsherferðin á netinu
- Besti smá- eða handtækjavefurinn
- Besti afþreyingar- og/eða fréttavefurinn
- Besti blog/efnistök/myndefni
Dómnefnd veitir þar að auki þrenn auka verðlaun
- Frumlegasti vefurinn
- Besta útlit og viðmót
- Besti íslenski vefurinn
Tilnefningar til dómnefndar
Vefakademína er á hverju ári skipuð einstaklingum með sérþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum.
Ef þið hafið sérfræðiþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum eða vitið af slíkum einstaklingum þá hvetjum við ykkur til að senda inn tilnefningar í dómnefnd. Einnig má tilnefna aðra.
Leitast er við að hafa hópinn sem breiðastan þannig að reynsla og þekking á ólíkum sviðum sé sem mest. Litið er sérstaklega til þekkingar á viðmóti, vefhönnun, markaðssetningu á netinu, forritun, vefumsjón, vefstjórnun, og þar fram eftir götunum.







