Vefir í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna 2010

30.01.2011 19:56

Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá vefi sem komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna.

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Eftirfarandi vefir eru í úrslitum:

Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með færri en 50 starfsmenn

Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn

Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn

Besti afþreyingar- og fréttavefurinn

Besta blogg/efnistök/myndefni

Besti hand-smátækja vefurinn

Besta markaðsherferðin

Einnig verða veitt verðlaun fyrir Bestu hönnunina, Frumlegasta vefinn, Athyglisverðasta vefinn að mati félaga í SVEF og Besta vef Íslands 2010. Því eiga þeir vefir sem ekki komust í úrslit enn von á því að fá verðlaun.

Íslensku vefverðlaunin 2010 verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarbíói þann 4. febrúar nk.

Þetta er í tíunda sinn sem þessi verðlaun eru veitt og verður því athöfnin með glæsilegra móti. Þessi verðlaun eru jafnframt uppskeruhátíð vefiðnaðarins og allra þeirra sem í honum starfa.

Dagskráin hefst kl. 18 með fyrirlestri Simon Collison (www.colly.com) sem er af mörgum talinn einn færasti vefhönnuður dagsins í dag. Simon mun ræða um stöðu og framtíðarsýn vefiðnaðarins. Að því loknu mun hann afhenda verðlaunin. Aðgangur er ókeypis.