Úrslit Íslensku Vefverðlaunanna 2011

03.02.2012 20:03

Orkusalan.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir í kvöld. Jón Gnarr, borgarstjóri Reykavíkur, afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Tjarnarbíói og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 11 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna, en þetta er í 11. skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin.

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

Sigurvegarar í hverjum flokki:

Umsögn dómnefndar um sigurvegarana:

Besta sölu og kynningarvefurinn með færri en 50 starfsmenn
Viðfangsefni vefsíðunnar er sett fram á mjög frumlegan og skemmtilegan hátt. Útlit hennar er lokkandi og fær notandann til þess að vilja kynnast síðunni betur. Markaðs- og kynningarefni er áberandi og smekklega fram sett og heildarsköpun vefsíðunnar augljóslega úthugsuð.
Besta sölu og kynningarvefurinn með færri en 50 starfsmenn er... ORKUSALAN

Besti sölu- og kynningarvefurinn með fleiri en 50 starfsmenn

13 tilnefningar bárust í þessum flokk. Óhætt er að segja að dómnefnd hafi þurft að vinna fyrir pizzunni við val á sigurvegara þar sem nokkrir vefir stóðu svo til jafnfætis fram undir hið síðasta. Það sem réði úrslitum í vali dómnefndar var aðdáunarverð og sjaldséð natni varðandi alla þætti vefsins. Efni vefsins er mjög aðgengilegt og sérlega snyrtilega framsett auk þess sem tæknileg útfærsla er til fyrirmyndar. Útkoman er heilsteypur vefur sem er vörumerkinu til sóma.
Besti sölu- og kynningarvefurinn með fleiri en 50 starfsmenn er: Landsbankinn.is

Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn
Alls bárust 27 tilnefningar til verðlauna fyrir besta þjónustu- og upplýsingavefurinn. Vinningshafa hefur að mati dómnefndar tekist frábærlega að setja fram upplýsingar um þjónustu sína á skýran máta. Vefurinn skartar einföldu en sérstaklega vönduðu útliti sem hæfir vel. Aðgengi að umfangsmiklu efni er gert eins þægilegt og best verður á kosið með vel heppnuðu leiðarkerfi og leit. Glæsilegur og vel unninn vefur í alla staði.
Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn er: Landsbankinn.is

Besti hand-smátækja vefurinn
Það sem einkennir þennan farsímavef er hversu ótrúlega vel tókst til við framsetningu viðfangsefnisins. Öll virkni á vefnum er flott, aðgengi til fyrirmyndar og einföld og stílhrein hönnun setur sterkan svip á vefinn. Ljósmyndir og vídeóklippur njóta sín og tenging við samskiptamiðla og staðsetningu notandans spila stóran þátt þegar kemur að notkun vefsins.
Besti hand-smátækja vefurinn 2011 er... Síminn Airwaves

Besta markaðsherferðin á netinu
Markaðsherferð þessari tókst að virkja samfélagsmiðlana á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Fólk á öllum aldri tók vel í þessa áskorun og viðbrögðin létu greinilega ekki á sér standa. Jafnframt er útfærsla vefsins mjög í takt við heildarútlit herferðarinnar á öðrum miðlum og útkomin skemmtileg fyrir þá sem síðuna sækja.
Besta markaðsherferðin á netinu 2011 er... Icelandair uppáhaldsborgir

Besta blogg/efnistök/myndefni
Í þennan flokk bárust alls 13 mjög ólíkar tilnefningar, enda heiti flokksins frekar vítt. Vefurinn sem vinnur þennan flokk er einstaklega vel unnin, efnið er hugsað út fyrir kassann og sett upp á mjög myndrænan og sjónrænan hátt. Dómnefnin mat það sem svo að vefur þessi hefði allt það sem góður vefur þarf að hafa þ.e. vel skrifaðan texta og skemmtilegar listrænar myndir.
Því varð vefurinn með besta blogg/efnistök/myndefni valin... Snoop-Around.com

Besti afþreyingar- og fréttavefurinn 2011
Alls bárust dómnefnd 12 tilnefningar til verðlauna fyrir besta afþreyingar- og fréttavefinn. Eftir að hafa vegið og metið alla tilnefnda vefi út frá tæknilegri útfærslu þeirra, frágangi, efnistökum, fróðleik, afþreyingargildi og gæðum innihaldsins, varð niðurstaðan sú að verðlauna vef sem frá tæknilegu sjónarhorni þykir mjög vel útfærður og vinnubrögðin til fyrirmyndar. Vandfundinn er sá vefur sem stendur þessum jafnfætis þegar kemur að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi, sem einnig er gert lesendum aðgengilegt á ýmsan máta utan vefsins sjálfs. Dómnefnd þótti sérstök prýði af farsímaútgáfunni sem fylgdi nýlegri og vel heppnaðri útlitsbreytingu á vefnum.
Besti afþreyingar- og fréttavefurinn er... RÚV.is.

Frumlegasti vefurinn 2011
Dómnefndin lagði sjálf inn tillögur í þennan flokk og var þar af nógu að taka. Margir vefir voru nefndir og rætt þar framm og til baka hvað væri frumlegt við hitt og þetta. Tekist var á um það hvort hér væri verið að velja frumlega hugmynd eða frumlega vef-hugmynd og þar fram eftir götunum. En frumlegasti vefurinn að þessu sinni á sér engann líkann og eiginlega einn á báti hvað frumlegheitin varðar! Hann er að bjóða upp á efni sem allir geta sett inn og allir geta nálgast og eru með því að gefa lýðræðinu meira vægi.. eruði orðin heit..vitiði um hvaða vef ég er að tala...
Frumlegasti vefurinn 2011 er... Betri Reykjavík.is

Besta útlit og viðmót
Það kemur kannski ekki mikið á óvart að vefsíðan sem vinnur í þessum flokki er flott. Hún er reyndar ekki bara flott, því hún er glæsileg. Hér er á ferðinni vefsíða þar sem minnstu smáatriði eru þaulhugsuð. Samspil fallegra ljósmynda, texta og hnappa eru í hæsta gæðaflokki og innihald vefsíðunnar er vel framsett og aðgengilegt. Ef tölvuskjáir hefðu tilfinningar, þá færu þeir að gráta þegar vefsíðunni er lokað.
Besta útlit og viðmót 2011 er... Orkusalan

Besti Íslenski vefurinn
Besti vefurinn að mati dómnefndar hefur allt sem þarf til að gera góðan vef frábæran. Textasmíði á vefsíðunni er til fyrirmyndar, efnistök og uppbygging skýr og aðgengileg, markaðs- og kynningarefni fellur vel að síðunni, þjónustuþættinum er sinnt vel og hönnun og viðmót framúrskarandi. Hér er klárlega vandað til verka.
Besti Íslenski vefurinn 2011 er... Orkusalan

Um dómnefnd

Díana Dögg Víglundsdóttir
Díana Dögg er með MA-próf í blaða- og fréttamennsku frá HÍ, en hún fékk aldrei að spreyta sig á því sviði, þar sem henni var kippt beint úr skólanum og inn í vefdeild Háskóla Íslands. Ári síðar var hún orðin vefstjóri HÍ og hefur nú sinnt því starfi síðustu þrjú ár. Hún hefur mikinn metnað fyrir sínu starfi og stjórnar þar stóru og frekar flóknu vefbatteríi.

Soffía Haraldsdóttir
Soffía hefur brennandi áhuga á vefmálum og ábatasömum rekstri vefja. Hún er rekstrarstjóri mbl.is og hefur því umsjón með rekstrar- og þróunarmálum á mest sótta vef landsins. Fyrir röskum 20 árum hóf hún kerfisfræðinám meira af vilja en getu en missti áhugann þegar kom að gagnagrunnsforritun. Síðar lá leiðin í viðskiptanám og þar beitti hún sér fyrir að nemendur fengju að tengja saman nám í viðskiptum og tölvunarfræðum, sem skilaði sér m.a. í svolítilli vefforritunarkennslu. Soffía hefur lokið meistaraprófi í stefnumótun, á að baki nokkuð marglitan starfsferil og er sökker fyrir árangurskenningum. Hún reynir að hafa þetta hugfast: Taktu lífinu ekki of alvarlega. Þú kemst ekki lifandi frá því.

Jökull Sólberg Auðunsson
Jökull hefur starfað innan auglýsingageirans í vefsíðugerð fyrst í London á auglýsingastofunni Poke og svo hér heima á Jónsson & Le'macks. Á J&L er ætlunin að verða leiðandi á sviði auglýsingagerðar á nýjum miðlum, og hefur það gengið ágætlega. Jökull er ekki háskólagenginn. Jökull stofnaði vefsíðuna Heilabú árið 2002, en hún er ekki lengur til. Þar lærði hann allt sem þarf til að búa til góðan vef. Jökull er þakklátur fyrir að lifa á tímum þar sem þeir sigra sem búa til sjálfir.

Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir
Jóna Dögg lærði að skrifa html fyrir 15 árum síðan á svokölluðum imbrudögum í FG. Í kjölfarið setti hún upp sinn fyrsta persónulega vef. Á honum var slatti af blikkandi gif myndum, meðal annars "This site is under construction", dansandi hömstrum og meginmáls texti birtur með skær rauðum Comic Sans.
En mikið vatn hefur runnið til sjávar og hefur hún lært sitthvað fleira sniðugt í vefhönnun síðan þá.
Jóna Dögg er með diplóma í margmiðlunarhönnun og hefur starfað í tæp 4 ár hjá Hugsmiðjunni og hannað þar yfir 50 vefi. Hún telur sig vera í draumadjobbinu sínu.

Samúel Jónasson
Samúel hefur verið að reyna að mennta sig sjálfur í forritun í um það bil 30 ár. Hann vonast til að verða fullnuma eftir önnur 30. Eftir að vefurinn kom til sögunnar hefur Samúel fylgst vel með þeirri þróun bæði sem tæknimaður og áhugamaður um hönnun.
Í dag er Samúel tæknistjóri og meðeigandi hjá Gagarín.

Erling Ormar Vignisson
Erling snerti fyrst á vefmálum í framhaldsskóla árið 1995 og eftir það var ekki aftur snúið. Síðar urðu afdrifaríkir atburðir í námi við Háskólann í Reykjavík til þess að hann varð einn stofnenda einkamal.is (sem hefur aldrei hlotið Íslensku vefverðlaunin þrátt fyrir háa elli!). Erling hefur haft atvinnu af vefhönnun og -forritun allar götur síðan árið 2000 ef undan er skilinn sá tími sem hann eyddi við nám við Full Sail University í Flórída. Sligaður og hokinn af reynslu úr störfum fyrir Nepal, Kaupþing, Össur og nú síðast Applicon, lagði Erling með glöðu geði krafta sína til dómarastarfa fyrir Íslensku vefverðlaunin 2011.

Halldór Andri Bjarnason
Dóri er með BA-próf úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Í staðinn fyrir að demba sér út í strembið listamannslíf fékk hann vinnu með skóla hjá auglýsingastofu við að hanna auglýsingar, logo, margmiðlunarefni og vefi. Síðastliðin 14 ár hefur hann svo unnið sem liðtækur grafíker og hönnuður fyrir ýmis fyrirtæki, auglýsingastofur og vefstofur. Í dag hefur hann komið sér fyrir sem Art Director hjá tölvuleikjafyrirtækinu Gogogic þar sem hann leiðir metnaðarfullt teymi teiknara og hönnuða.

Ólafur Sverrir Kjartansson
Ólafur Sverrir er með BSc próf í hugbúnaðarverkfræði frá HÍ og hefur starfað á sama stað í fimm ár en þó með fjórum nöfnum, Advania, Skýrr, Eskill, Innn. Þar er hann í hlutverki verkefnastjóra og forritara þegar tími leyfir. Hann byrjaði að fikta á vefnum stuttu eftir fermingu og hefur verið að síðan.

Helgi Pjetur Jóhannsson
Helgi er svokallaður app-gúrú. Hann er hönnuður og meðeigandi hjá app-fyrirtækinu Stokkur Software sem sérhæfir sig í að smíða "öpp" fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. En fyrir tíma "appana" sinnti Helgi hinum margvíslegu störfum. Hann hannaði vefsíður fyrir símafyritæki og fréttamiðla, sinnti markaðsmálum, stofnaði og sá um rekstur tónlistarútgáfunnar Cod Music, sinnti umboðsmennsku og fór í tónleikaferðir. En allt byrjaði þetta með aðkomu hans að stofnun Tónlist.is árið 2003

Sævar Örn Sævarsson
Sævar hóf sinn ferill í margmiðlunargerð árið 1998 sem upp úr 2000 yfirfærðist yfir í vefsíðugerð og netlausnir. Á þessu 14 ára tímabili hefur hlutverk hans snúist að miklu leyti um útfærslur og þróun vefssvæða í öllum sínum birtingarformum ásamt því að sinna ráðgjöf til margra stærstu fyrirtækja landsins í vefmálum og upplýsingatækni. Í dag gegnir Sævar stöðu framkvæmdastjóra Skapalóns og leiðir þar áfram framúrskarandi teymi hönnuða og forritara.

Þórhallur Helgason
Laddi er með B.Ed. gráðu frá Kennaraháskóla Íslands. Hann hefur þó aldrei hellt sér af fullum krafti í kennslustörf og má raunar segja að þar hafi óbilandi áhugi hans á vefforritun spilað stórt hlutverk. Hann hefur verið viðloðandi bransann í næstum tuttugu ár og hefur á þeim tíma komið að uppsetningu og forritun á fjölmörgum vefum og vefkerfum. Í dag vinnur hann jöfnum höndum fyrir GreenQloud og idega.