Vefakademína er á hverju ári skipuð einstaklingum með sérþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum. Dómnefndina skipa 5 aðalmenn og 2 varamenn.
Tilnefningar til dómnefndar
Ef þið hafið sérfræðiþekkingu og brennandi áhuga á vefmálum eða vitið af slíkum einstaklingum þá hvetjum við ykkur til að senda inn tilnefningar í dómnefnd.
Breiður hópur sérfræðinga
Leitast er við að hafa hópinn sem breiðastan þannig að reynsla og þekking á ólíkum sviðum sé sem mest. Litið er sérstaklega til þekkingar á viðmóti, vefhönnun, markaðssetningu á netinu, forritun, vefumsjón, vefstjórnun, og þar fram eftir götunum
Tekið verður á móti tilnefningum í dómnefndina til 22. janúar og dómnefndin svo skipuð þann 23. janúar 2010.







