29.01.2011 00:33
Nú er komið að því að innheimta félagsgjöldin fyrir starfsárið 2011. Gjaldið er að venju hóflegt eða 2000 kr. Að þessu sinni er farin ný leið við innheimtu félagsgjaldanna en SVEF hefur farið í samstarf við Borga.is. Félagsmenn munu fá sendan tölvupóst með öllum upplýsingum þar að lútandi á næstu dögum.
Með því að greiða félagsgjöldin styrkir þú starf SVEF og eflir grasrótina. SVEF stendur fyrir fjölda viðburða á hverju ári og fær til liðs við sig fyrirlesara í fremstu röð, bæði innlenda og erlenda. Allar tekjur félagsins renna beint inn í starfið en þeir sem koma að daglegum rekstri þess gefa sína vinnu.
Nánar...24.01.2011 13:40
Nú fer hver að verða síðastur til að tilnefna vefi til Íslensku vefverðlaunanna 2010. Fresturinn rennur út á miðnætti á morgun 25. janúar 2011.
Verðlaunin verða svo afhent við hátíðlega athöfn kl 18.00 í Tjarnarbíói 4. febrúar
Nánar...18.01.2011 09:10
Bjórkvöld SVEF verður haldið n.k. Miðvikudag 19. janúar kl 21.00 á efri hæð Sólon.
Umræðuefni kvöldsins verður "Green Information & Communication Technologies".
Fundarstjóri verður Ruth Shortall, sjálfbærnisstjóri og forritari hjá Green Qloud
Nánar...14.01.2011 14:28

Simon Collison sem er af mörgum talinn einn færasti vefhönnuður dagsins í dag verður viðstaddur Íslensku Vefverðlaunin þar sem hann flytur fyrirlestur ásamt því að afhenda verðlaunin sjálf.
Umræðuefnið verður hans nálgun á stöðu vefgeirans í dag ásamt framtíðarsýn.
Afhending Íslensku Vefverðlaunanna fer fram kl 18.00 í Tjarnarbíói 4. febrúar 2011.
Nánar...10.01.2011 21:35
Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2010.
Opið verður fyrir tilnefningar til 25. Janúar. Verðlaunin verða svo afhend við hátíðlega athöfn kl 18.00 í Tjarnarbíói 4. febrúar
Nánar...10.01.2011 21:28
Aðalfundur Samtaka Vefiðnaðarins, SVEF, var haldinn fimmtudaginn 25. nóvember á veitingastaðnum Sólon í Bankastræti. Á fundinum var farið yfir starfsemi og reikninga félagsins starfsárið 2009-2010 og ný stjórn kjörin fyrir næsta starfsár.
Nánar...18.11.2010 12:53
Aðalfundur SVEF verður haldinn fimmtudaginn 25. nóvember nk. kl. 18. Fundurinn er haldinn á veitingastaðnum Sólon v/Bankastræti, 2. hæð.
Nánar...18.11.2010 12:43

Nú er í fyrsta sinn efnt til Evrópusamkeppni um besta barnaefnið á netinu. Um er að ræða sameiginlegt átak fjórtán netöryggismiðstöðva í Evrópu og þeirra þjóða er starfa samkvæmt netöryggisáætlun Evrópusambandsins.
Nánar...27.09.2010 10:08
Ráðstefnan Iceweb fer fram nú fram í þriðja sinn daga 7 og 8 október.
Að venju flytjum við inn hóp af erlendum sérfræðingum sem halda bæðiNánar...
22.07.2010 23:26
Ráðstefnan Iceweb fer fram nú fram í þriðja sinn daga 7 og 8 október.
Að venju flytjum við inn hóp af erlendum sérfræðingum sem halda bæði vinnustofur og flytja fyrirlestra:
Nánar...07.06.2010 23:13

Ert þú sammála að fundir séu eitraðir? Er ASAP hættulegt? Er betra að vaxa hægt heldur en hratt? Nú getur þú rætt þetta og deilt þínum skoðunum með öðrum sem hafa lesið Rework. Það er einfaldari, betri og snjallari leið til að reka fyrirtæki í dag.
Nánar...29.03.2010 11:33
Undirbúningur fyrir Iceweb 2010 er nú hafinn. Það er að mörgu að huga og margar hugmyndir á lofti. Við óskum eftir áhugasömum sjálfboðaliðum til að taka þátt í undirbúningnum og hugmyndavinnunni með okkur. Áhugasamir sendi póst á stjorn@svef.is
Nánar...01.03.2010 14:24

Minningarathöfn um Internet Explorer 6 verður haldin kl 20.00, fimmtudaginn 4. mars í Bertelstofu á Thorvaldsen.
Nánar...13.02.2010 15:03

Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir í dag. Katrín Júlísdóttir, Iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Hugmyndahúsi háskólanna og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 10 flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni, en þetta er í níunda skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin.
Nánar...05.02.2010 23:48

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá vefi sem komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna.
Nánar...