Bjórkvöld SVEF - Sharepoint: Hor or not?

Balthazar, Hafnarstræti - Fimmtudagskvöldið 30. apríl kl.20:30

Takið frá fimmtudagskvöldið 30. apríl fyrir Sharepoint: Hot or NOT?

Bjórkvöldið verður haldið á efri hæðinni á Balthazar og hefst kl. 20:30.

Fyrirlesarar eru hoknir af reynslu úr samvinnu með Sharepoint, en stíga nú í fyrsta sinn á stokk á bjórkvöldi SVEF.

  • Óli Ívarsson hjá Össuri segir okkur frá því hvernig er að reka Sharepoint í fjölþjóðlegu umhverfi.
  • Sirrý Sigurðardóttir hefur komið að uppsetningu Sharepoint hjá tveimur fyrirtækjum og ætlar að fjalla um sína reynslu af því.
  • Anna Helgadóttir er vefstjóri Marel og ætlar að leiða okkur í sannleikann um það hvers vegna Marel kaus að nota ekki Sharepoint fyrir ytri vefinn sinn.
  • Sigurður Unnar Einvarðsson frá TM Software kynnir innranet og vinnusvæði starfsmanna Landsbjargar.

Eins langar okkur að heyra frá fleirum sem hafa reynslu af Sharepoint. Endilega mætið á fimmtudagskvöldið og segið frá ykkar reynslu eða hafið samband við okkur í netfangið svef@svef.is.

Myndir

Sharepoint - Hot or Not?