Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, Hafnarstræti - Föstudaginn 30. janúar 2009
Nú erum við byrjuð að telja niður að verðlaunaathöfn Íslensku vefverðlaunanna 2008 sem mun fara fram í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, föstudaginn 30. janúar 2009. Verðlaunaathöfnin hefst með hanastéli kl. 17:00.
Fyrr um daginn standa Samtök vefiðnaðarins fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum. Ráðstefnan hefst kl. 14:00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.
Dómnefndin hefur unnið hörðum höndum undanfarna viku við að velja útnefningar í hverjum flokki.


































