Verkefni ársins
Lyfja Appið
Framleiðendur: Vettvangur, Apparatus og Lyfja
Umsögn dómnefndar:
Verkefni ársins er stílhrein lausn sem tekur vel utan um allt ferlið og leiðir notendur í gegnum alla hluta fjölbreytts þjónustuframboðs. Metnaðarfullt verkefni sem gefur frábært fordæmi hvernig tæknileg lausn getur auðveldað aðgengi fólks að nauðsynlegri þjónustu sem flestir þurfa að nýta sér einhvern tímann á lífsleiðinni.
Hönnun og viðmót
14 Islands
Framleiðendur: 14 Islands
Umsögn dómnefndar:
Sigurvegari ársins fyrir hönnun og viðmót sýnir vel hversu öflug og fjölbreytt nútíma veftækni er orðin og hvað er hægt að gera margt skemmtilegt með henni. Frábær vefur þar sem ímyndunaraflinu er gefinn laus taumur og sköpunarkrafturinn skín í gegn.
Fyrirtækjavefur ársins (lítil fyrirtæki)
14 Islands
14islands.com
Framleiðandi: 14 Islands
Umsögn dómnefndar:
Vönduð hönnun og fáguð umgjörð einkennir þennan vef. Nostrað hefur verið við hvert smáatriði í hönnun og kvikun og útkoman er bæði áhugaverð og notendavæn. Vefnum tekst einkar vel til að koma notandanum á óvart með fallegum síðuflettingum og litlum gleðimolum.
Upphlaupari:
- Myndlistarmiðstöð / Icelandic Art Center
- https://www.icelandicartcenter.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan, Myndlistarmiðstöð og Studio Studio
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Fly Fishing Agency https://www.flyfishing.agency/
- Framleiðendur: Jökulá
- Nýr Straumur í greiðslumiðlun https://www.straumur.is/
- Framleiðendur: Kvika og Hér og Nú
- Hjúkrun – Félag íslenskra hjúkrunarfræðing https://www.hjukrun.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Fyrirtækjavefur ársins (meðalstór fyrirtæki)
Ný vefsíða juni.is
juni.is
Framleiðandi: Júní
Umsögn dómnefndar:
Líflegur og flottur vefur sem gaman er að vafra um. Grípandi myndefni og flott framsetning á efni vefsins gerir upplifunina ánægjulega og kemur skemmtilega á óvart.
Upphlaupari:
- Íslandsstofa https://www.islandsstofa.is/
- Framleiðendur: Íslandsstofa + Júní
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Vefur Kolibri https://www.kolibri.is
- Framleiðendur: Kolibri
- Kerlingarfjöll – Highlandbase https://highlandbase.is/
- Framleiðendur: Kerlingarfjöll – Highlandbase Bláa Lónið og Aranja
- Lífeyrissjóður verzlunarmanna – https://www.live.is/
- Framleiðendur: Vettvangur
Fyrirtækjavefur ársins (stór fyrirtæki)
Vefur Efla Engineers
efla-engineers.com
Framleiðandi: Efla & Hugsmiðjan
Umsögn dómnefndar:
Vefurinn er virkilega vandaður og tekst vel til að fjalla um flókin og oft á tíðum þurr viðfangsefni á áhugaverðan og skemmtilegan hátt. Þéttur, vel skipulagður en umfram allt stílhreinn og fallegur vefur sem gaman er að vafra um og skoða.
Upphlaupari:
- Sóltún https://soltun.is
- Framleiðendur: Kolibri
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Gangverk.com https://gangverk.com
- Framleiðendur: Gangverk og Aranja
- Vefur Íslandsbanka https://www.islandsbanki.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Íslandsbanki
- Domino’s – www.dominos.is https://www.dominos.is/
- Framleiðendur: Vettvangur
Markaðsvefur ársins
Önnu Jónusson – The Radio won´t let me sleep
onnujonuson.com
Framleiðandi: Aristide Benoist, Robbin Cenijn, Haraldur Þorleifsson
Umsögn dómnefndar:
Markaðsvefur ársins er listasmíð hvað hönnun og útfærslu snertir sem er sannarlega viðeigandi fyrir efni vefsins sem fær að njóta sín. Vefurinn er í senn eftirminnilegur og heillandi og býður notendum inn í heim upplifunar.
Upphlaupari:
- Uppá bak https://www.uppabak.is
- Framleiðendur: Jökulá – Einar Ben/Bien – Ari Hlynur Yates/TeiknAri – Samgöngustofa – VÍS
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Vörumerkjahandbók fyrir heildrænt útlit Keflavíkurflugvallar – KEF Airport https://dna.kefairport.is/
- Framleiðendur: Brandenburg, Arnar Ólafs, Hugsmiðjan og Isavia
- Vegir okkar allra https://vegirokkarallra.is/
- Framleiðendur: Júní + Verkefnastofa um fjármögnun vegainnviða + Aton JL
- Netgíró – www.netgiro.is https://www.netgiro.is/
- Framleiðendur: Vettvangur & Maurar hönnunarstúdíó
Efnis- og fréttaveita
Annar áfangi bhm.is
bhm.is
Framleiðandi: BHM og Hugsmiðjan
Umsögn dómnefndar:
Vefurinn, sem er ansi efnismikill, er vel skipulagður og afar þægilegur til leitar og almennar vöfrunar. Uppsetning og hönnun er stílhrein og falleg og vefurinn sinnir sínu hlutverki sem upplýsingaveitandi afar vel.
Upphlaupari:
- Vörumerkjahandbók fyrir heildrænt útlit Keflavíkurflugvallar – KEF Airport https://dna.kefairport.is/
- Framleiðendur: Brandenburg, Arnar Ólafs, Hugsmiðjan og Isavia
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Upplýsingavefur fyrir Vatnajökulsþjóðgarð https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Vatnajökulsþjóðgarður
- Myndlistarmiðstöð / Icelandic Art Center https://www.icelandicartcenter.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan, Myndlistarmiðstöð og Studio Studio
- Ísland.is https://island.is/
- Framleiðendur;: Stefna og Júní fyrir Stafrænt Ísland
Söluvefur ársins
Vefsala Bláa Lónsins
bluelagoon.com
Framleiðandi: Bláa Lónið
Umsögn dómnefndar:
Þægilegt og skýrt sölu- og bókunarferli þar sem hvert skref nýtur sín til fulls og aðalatriðin hverju sinni eiga sviðið. Hönnun, frágangur og framsetning efnis til algjörrar fyrirmyndar og bókunarvélin ber þess merki að nostrað hafi verið við hvert smáatriði.
Upphlaupari:
- Sotheby’s Sealed Auctions https://sealed.sothebys.com
- Framleiðendur: Aranja
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Ný bókunarvél Sky Lagoon https://www.skylagoon.com/booking/
- Framleiðendur: E-Cubed, Kolibri, Datera, Brandenburg, Pursuit Collections og Sky Lagoon.
- Vefverslun elko.is https://elko.is/
Framleiðendur: ELKO, Festi og Reon
- Fly Fishing Agency https://www.flyfishing.agency/
- Framleiðendur: Jökulá
Stafræn lausn ársins
Lyfja Appið
lyfja.is
Framleiðandi: Apparatus, Vettvangur og Lyfja
Umsögn dómnefndar:
Nýlega uppfærð útgáfa lausnarinnar er virkilega vel heppnuð. Skipulag og högun á flokkun og leit er alveg til fyrirmyndir. Einstakt þjónustuframboð gerir sitt til að það hljóti sigur í þessum sterka og fjölbreytta flokki stafrænna lausna.
Upphlaupari
- Mínar síður á Ísland.is https://island.is/minarsidur
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Stafrænt Ísland
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Domino’s – www.dominos.is https://www.dominos.is/
- Framleiðendur: Vettvangur
- Nýr vefur og bókunarvél Sky Lagoon https://www.skylagoon.com
- Framleiðendur: E-Cubed, Kolibri, Datera, Brandenburg, Pursuit Collections og Sky Lagoon
- Stafræn stæðiskort https://island.is/p-merki-staediskort
- Framleiðendur: Júní Digital fyrir Stafrænt Ísland
Opinber vefur ársins
Myndlistarmiðstöð / Icelandic Art Center
icelandicartcenter.is
Framleiðendur: Hugsmiðjan, Myndlistarmiðstöð og Studio Studio
Umsögn dómnefndar:
Skapandi hönnun einkennir þennan vef sem endurspeglar viðfangsefnið vel. Fallegur og nútímalegur vefur sem skapar heildstæða og grípandi upplifun fyrir notandann og auðvelt og ánægjulegt er að leita og flakka um.
Upphlaupari:
- Upplýsingavefur fyrir Vatnajökulsþjóðgarð https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/
- Framleiðendur; Hugsmiðjan og Vatnajökulsþjóðgarður
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Hverfið mitt https://www.hverfidmitt.is/
- Framleiðendur: Reykjavíkurborg og Hugsmiðjan
- Mínar síður á Ísland.is https://island.is/minarsidur/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Stafrænt Ísland
- Ísland.is https://island.is/
- Framleiðendur: Stefna og Júní fyrir Stafrænt Ísland
App ársins
NOONA
Noona appið
Framleiðendur: Noona Labs
Umsögn dómnefndar:
Appið er einfalt, létt og hraðvirkt og býður upp á saumlausa upplifun notenda sem nýta sér þjónustu þess. Þó að appið sé ekki nýgræðingur á markaðnum sést að það er í stöðugri þróun þar sem nýir eiginleikar og betrumbætur líta reglulega dagsins ljós.
Upphlaupari:
- Nova appið
- Framleiðendur: Nova ehf, Aranja og Jökulá
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Landsbanka appið
- Framleiðendur: Landsbankinn hf.
- Íslandsbanka appið
- Framleiðendur: Íslandsbanki og Hugsmiðjan
- Ísland.is appið
- Framleiðendur: Aranja, Enum og Júní fyrir Stafrænt Ísland
Samfélagsvefur ársins
Umferðin.is
umferdin.is
Framleiðandi: Kolofon, Greipur Gíslason & Vegagerðin
Umsögn dómnefndar:
Vefurinn sinnir gríðarlega mikilvægu samfélagslegu hlutverki og gerir það sérlega vel. Hann er í stöðugri þróun og eru flóknar upplýsingar settar fram á skýran og kjarngóðan hátt. Það skín í gegn að hér hefur verið vandað til verks.
Upphlaupari:
- Upplýsingavefur fyrir Vatnajökulsþjóðgarð https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Vatnajökulsþjóðgarður
Aðrar tilnefningar í sama flokki:
- Hjúkrun – Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga https://www.hjukrun.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
- Myndlistarmiðstöð / Icelandic Art Center https://www.icelandicartcenter.is/
- Framleiðendur: Hugsmiðjan, Myndlistarmiðstöð og Studio Studio
- Stafræn stæðiskort https://island.is/p-merki-staediskort
- Framleiðendur: Júní Digital fyrir Stafrænt Ísland
Gæluverkefni ársins
alexharri.com
Framleiðandi: Alex Harri
Umsögn dómnefndar:
Íburðarlaus en smekklegur vefur með sérlega vönduðu efni og flottri framsetningu.
Heiðursverðlaun ársins
Magga Dóra
Stafrænn hönnunarleiðtogi hjá Mennsk Ráðgjöf.